Innlent

Jóhanna á leiðtogafundi Eystrasaltsráðsins

Jóhanna Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir Mynd/GVA
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sækir leiðtogafund Eystrasaltsráðsins sem haldinn er í Vilníus í Litháen, 1.-2. júní.  Aðildarríki Eystrasaltsráðsins eru Norðurlöndin fimm, Eistland, Lettland, Litháen, Rússland, Pólland og Þýskaland, auk þess sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins á aðild að ráðinu.

Á dagskrá Eystrasaltsráðsins að þessu sinni verða umræður um styrkingu svæðisbundins samstarfs, meðal annars á sviði efnahagsmála og orkumála en einnig verður fjallað um næstu skref í baráttu Eystrasaltsráðsins gegn skipulagðri glæpastarfsemi og mansali, að því er fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×