Frjálsíþróttafólk slegið óhug Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. september 2010 19:51 Hótanir sem feðgarnir urðu fyrir eru taldar eiga rætur að rekja til deilna sem urðu á milli nemenda í Menntaskólanum í Kópavogi. Mynd/ Heiða.
Fréttir af árásum á heimili kúbversku feðgana Alberto og Ramon Borges hafa vakið óhug á meðal íþróttafólks sem þekkir þá vel af góðu starfi þeirra innan frjálsíþróttahreyfingarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Frjálsíþróttasambands Íslands. Þar segir að faðirinn, Alberto, hafi hafið störf á Íslandi sem frjálsíþróttaþjálfari fyrir 10 árum síðan og hafi m.a. sinnt ýmsum störfum fyrir FRÍ. Ramon hafi stundað frjálsíþróttir um árabil og keppti fyrir skömmu í unglingalandsliði FRÍ á Norðurlandamóti á Akureyri. Ekki þurfi að efast um að þeir eigi samúð meðal frjálsíþróttafólks og góðan stuðning í baráttunni fyrir því að geta snúið aftur til starfa og leiks í því öryggi og umburðarlyndi sem allir Íslendingar vilji njóta. Á vef Frjálsíþróttasambands Íslands segir jafnframt að frjálsíþróttahreyfingin hafi lagt áherslu á að allir væru velkomnir til þátttöku í starfi hennar, innan vallar sem utan, án tillits til hörundslitar, uppruna, kyns, trúarbragða eða annarra mannréttindaþátta. Stjórn Frjálsíþróttasambandsins hvetur íþróttafólk og velunnara íþrótta til að standa vörð um þessi gildi og styðja við baráttu gegn brotum á þeim. Eins og fram hefur komið flúðu feðgarnir land vegna ógnar sem þeim stafaði af mönnum sem höfðu í hótunum við Ramon. Hann hafði átt í deilum við nemendur í Menntaskólanum í Kópavogi sem er talið að hafi verið kveikjan að þeim hótunum sem hann var beittur.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira