Kveður rokkið og snýr sér að boltanum 28. janúar 2010 03:00 Lokatónleikar hljómsveitarinnar Shogun verða á Grand Rokk á laugardagskvöld.
Söngvari þungarokksveitarinnar Shogun, Ásgeir Börkur Ásgeirsson, hefur sagt skilið við félaga sína og ætlar í staðinn að einbeita sér að fótboltaferlinum með Fylki. Lokatónleikar Shogun, sem vann Músíktilraunir árið 2007, verða á Grand Rokk á laugardagskvöld. Eftir það skilja leiðir og ætla hinir í hljómsveitinni að stofna nýja hljómsveit með nýjum söngvara. „Þetta var bara sameiginleg ákvörðun. Þar sem hann er bæði góður söngvari og góður í fótbolta og búinn að vinna svo lengi að því að ná þessum árangri í fótbolta þá er erfitt að koma í veg fyrir það,“ segir Jóakim Sigurðarson, bassaleikari Shogun. Ásgeiri Berki þykir leiðinlegt að kveðja félaga sína en fótboltinn varð á endanum ofan á. „Við vorum komnir á fullt fyrr í vetur og vorum að spila mikið,“ segir hann um Shogun. „Svo var bara svo mikið að gera í fótboltanum líka og ég tók þá ákvörðun að mig langaði að einbeita mér að honum og gera einhverja hluti þar,“ segir hann og viðurkennir að atvinnumennska sé langtímamarkmiðið. „Stefnan er eins og alltaf síðan ég var lítill að reyna að verða atvinnumaður. Vonandi gerist það einhvern tímann.“ Á fótboltavellinum er hinn 22 ára Ásgeir hörkunagli sem kallar ekki allt ömmu sína. Hann vill þó ekki meina að rokkið hafi kallað fram þennan leikstíl. „Svona spilaði ég alltaf áður en ég byrjaði að hlusta á þungarokk,“ áréttar hann. Spurður hvort tár muni falla uppi á sviðinu á Grand Rokk hlær Ásgeir. „Ég veit það nú ekki en það verður skrítið að vera ekki í hljómsveit. Ég finn það þegar við erum að æfa fyrir þessa tónleika að það eru ennþá neistar í gangi.“ -fb
Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna Sjá meira