Lífið

Sönnunargögnin og JFK-samsærið

Farið verður í saumana á láti John F. Kennedy á Prikinu í kvöld.
Farið verður í saumana á láti John F. Kennedy á Prikinu í kvöld. Mynd/AFP

Félagsskapurinn Gagnauga.is blæs til sýningarraðar á heimildarmyndum sem „afhjúpa raunveruleika sem þaggaður hefur verið niður af viðskiptaöflum og innihalda upplýsingar sem stórmiðlar hafa keppst við að gera tortryggilega í áratugi," eins og kemur fram í tilkynningu.

Sýningarröðin verður klukkan 22 öll mánudagskvöld septembermánaðar á Prikinu. Hún hefst í kvöld á sýningu myndarinnar JFK: The Case For Conspiracy, þar sem morðið á John F. Kennedy er tekið fyrir.

„Þú hefur eflaust heyrt eitthvað um JFK samsærið, en hversu mikið veistu um þau sönnunargögn sem kenningarnar byggjast á?" spyr Gagnauga.is í tilefni sýningarinnar.

Meðal viðfangsefna myndanna sem von er á næstu mánudagskvöld eru síðan New World Order (Nýja heimsveldið), 11. september og stjórnun mannlegs samfélags, eða „nokkurskonar "best of" úr samsærisgeiranum."

Nánari upplýsingar má finna á Facebook-síðu um viðburðinn og á Gagnauga.is.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.