Kom Íslendingum í opna skjöldu þegar CNN birti listann 11. nóvember 2010 12:23 Halldór Ásgrímsson og starfsmenn hans áttu ekki von á því að listinn yrði gerður opinber þann 18.mars 2003.
Það virðist hafa komið utanríkisráðuneytinu í opna skjöldu þegar listi hinna staðföstu þjóða var birtur á fréttastöðinni CNN þann 18. mars 2003. Þá höfðu engin svör borist frá Bandaríkjastjórn um hvernig listinn yrði notaður. Eins og greint var frá í hádeginu litu íslensk yfirvöld á það sem svo að vera Íslands á listanum væri algjört trúnaðarmál. Skjal númer 40 af þeim 67 skjölum um aðdraganda stuðnings Íslands við innrás í Írak sem nú hafa verið birt er minnisblað frá Alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, dagsett 19. mars. Þar segir meðal annars: „Listi yfir þau 30 ríki sem styðja Bandaríkin og Bretland var lesinn upp í fréttum á CNN sjónvarpsstöðinni kl. 18:30 (ísl.tíma) í gær (18.mars). Þá höfðu, þrátt fyrir beiðni íslenskra stjórnvalda, ekki borist upplýsingar frá bandarískum stjórnvöldum um það hvernig þau hyggðust nota listann eða hvenær og með hvaða hætti hann yrði gerður opinber." „Enn vantar upplýsingar um það frá bandarískum stjórnvöldum hvað felist í því að vera á þessum 30 ríkja lista," segir ennfremur og bætt við: „Fátt hefur verið um svör í þeim efnum og virðist sem það sé bandarískum stjórnvöldum ekki fulljóst sjálfum." Þá kemur einnig fram að fyrr um daginn 18.september, þegar listinn var birtur, hafi fulltrúar ráðuneytisins spurt fulltrúa í bandaríska sendiráðinu hér á landi „hvort Íslendingar gætu átt von á því, öllum að óvörum, að listinn yrði birtur á CNN eða í öðrum fjölmiðli." Það kom einmitt á daginn, nokkrum tímum síðar.
Tengdar fréttir Listi hinna staðföstu var algjört trúnaðarmál Íslensk stjórnvöld voru á lista „hinna staðföstu þjóða" sem studdu innrás í Írak, tveimur dögum áður en innrásin hófst. Þá var litið á listann sem „algjört trúnaðarmál". 11. nóvember 2010 12:11 Leyniskjal segir innrásina í Írak lagalega vafasama Þjóðréttarfræðingur, sem vann álit fyrir forsætisráðherra og ráðuneytisstjóra, um lagalegan grundvöll til beitingar vopnavalds gagnvart Írak, komst að þeirri niðurstöðu þann 20. mars 2003, að það væri ekki ótvíræður lagalegur grundvöllur fyrir innrás í Írak. 11. nóvember 2010 12:28 Mest lesið Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent Fannst heill á húfi Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Erlent „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Innlent Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Erlent Fleiri fréttir Biðla til bílstjóra sem leggja á bílastæði kirkjunnar Gjörólíkt gengi frá kosningum Helmingur landsmanna ánægður með störf Höllu Rafmagnslaust í öllum Skagafirði Gerður ráðin skólastjóri Barnaskóla Kársness Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Fjórir greinast að meðaltali á ári með malaríu Markar lok vegferðar sem hófst vegna Kristnihátíðarinnar 2000 Óska eftir myndefni af gröfunni Vendingar í hraðbankamálinu og húsnæði sem fólk vill ekki Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Fannst heill á húfi Síðustu aspirnar á Austurvegi felldar Björguðu ferðamanni sem hafði fest bílinn í aurbleytu við Hagavatn Gæsluvarðhaldskröfu hafnað í hraðbankamálinu „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Verkefni stjórnvalda að takast á við undantekningar í skólakerfinu Leiguverðshækkanir hafa étið upp hækkun húsnæðisbóta Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Meðalvelta á kaupsamning 75,6 milljónir króna Leysigeisla beint að tveimur flugvélum í aðflugi Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Telur handtökuna byggja á slúðri Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Aukið aðhald í ríkisfjármálum og lífsbarátta hvals „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn „Það er ekkert verið að innleiða einhver svakaleg próf í Kópavoginum“ Sjá meira
Listi hinna staðföstu var algjört trúnaðarmál Íslensk stjórnvöld voru á lista „hinna staðföstu þjóða" sem studdu innrás í Írak, tveimur dögum áður en innrásin hófst. Þá var litið á listann sem „algjört trúnaðarmál". 11. nóvember 2010 12:11
Leyniskjal segir innrásina í Írak lagalega vafasama Þjóðréttarfræðingur, sem vann álit fyrir forsætisráðherra og ráðuneytisstjóra, um lagalegan grundvöll til beitingar vopnavalds gagnvart Írak, komst að þeirri niðurstöðu þann 20. mars 2003, að það væri ekki ótvíræður lagalegur grundvöllur fyrir innrás í Írak. 11. nóvember 2010 12:28