Innlent

Hillir undir byltingu í endurgreiðslu lyfja

Álfheiður Ingadóttir.
Álfheiður Ingadóttir. Mynd/Stefán Karlsson

Allt bendir til þess að nýtt endurgreiðslukerfi lyfja verði tekið upp um áramótin, að sögn Álfheiðar Ingadóttur, fráfarandi heilbrigðisráðherra, í ítarlegu helgarviðtali. Endurskipulagning, ekki flatur niðurskurður, verður höfð að leiðarljósi til að ná markmiðum fjárlaga innan heilbrigðiskerfisins á næsta ári.

„Markmiðið er að hlífa þeim, sem mest þurfa á lyfjum að halda, við þeim mikla kostnaði sem því fylgir. Núna fer lyfjakostnaður frekar eftir sjúkdómum en eftir stöðu einstaklingsins. Sumum sjúkdómum fylgja ókeypis lyf út lífið. En aðrir þurfa að borga mjög mikið fyrir sín lyf. Þetta er risamál sem dagaði uppi í hruninu, en það er mikilvægt að koma þessu á," segir Álfheiður um nýtt endur-greiðslukerfi lyfja sem verið er að leggja lokahönd á í heilbrigðisráðuneytinu.

Spurð um fjárlagagerðina og málefni Landspítalans segir Álfheiður ljóst að markmiðum fjárlaga verði aðeins náð með endur-skipulagningu, ekki flötum niðurskurði. „Það þarf að skera niður í heilbrigðisþjónustunni allri á næsta ári um 4,7 milljarða. Til að ná því þarf að mínu mati skipulagsbreytingar, meðal annars að hætta uppbyggingu á litlum landspítölum vítt og breitt um landið. Við verðum að styrkja stóru sjúkrahúsin, á Akureyri og Landspítalann. Á móti verður að auka nærþjónustuna á eins konar heilsugæslusjúkrahúsum og styrkja sjúkraflutninga."

Álfheiður telur að sameining heilbrigðisráðuneytisins og félags- og tryggingamálaráðuneytisins útheimti tilfærslu verkefna. Óbreytt sé ráðuneytið of stórt og innan þess verkefni sem eiga illa saman.

Hún segir eina ástæðu þess að hún skipti út stjórn Sjúkratrygginga Íslands hafa verið að stöðva síendurteknar yfirkeyrslur. Í ár stefnir í að stofnunin fari 2,5 milljarða fram úr fjárheimildum sínum. - shá / sjá








Fleiri fréttir

Sjá meira


×