Hillir undir byltingu í endurgreiðslu lyfja 11. september 2010 09:00 Álfheiður Ingadóttir. Mynd/Stefán Karlsson
Allt bendir til þess að nýtt endurgreiðslukerfi lyfja verði tekið upp um áramótin, að sögn Álfheiðar Ingadóttur, fráfarandi heilbrigðisráðherra, í ítarlegu helgarviðtali. Endurskipulagning, ekki flatur niðurskurður, verður höfð að leiðarljósi til að ná markmiðum fjárlaga innan heilbrigðiskerfisins á næsta ári. „Markmiðið er að hlífa þeim, sem mest þurfa á lyfjum að halda, við þeim mikla kostnaði sem því fylgir. Núna fer lyfjakostnaður frekar eftir sjúkdómum en eftir stöðu einstaklingsins. Sumum sjúkdómum fylgja ókeypis lyf út lífið. En aðrir þurfa að borga mjög mikið fyrir sín lyf. Þetta er risamál sem dagaði uppi í hruninu, en það er mikilvægt að koma þessu á," segir Álfheiður um nýtt endur-greiðslukerfi lyfja sem verið er að leggja lokahönd á í heilbrigðisráðuneytinu. Spurð um fjárlagagerðina og málefni Landspítalans segir Álfheiður ljóst að markmiðum fjárlaga verði aðeins náð með endur-skipulagningu, ekki flötum niðurskurði. „Það þarf að skera niður í heilbrigðisþjónustunni allri á næsta ári um 4,7 milljarða. Til að ná því þarf að mínu mati skipulagsbreytingar, meðal annars að hætta uppbyggingu á litlum landspítölum vítt og breitt um landið. Við verðum að styrkja stóru sjúkrahúsin, á Akureyri og Landspítalann. Á móti verður að auka nærþjónustuna á eins konar heilsugæslusjúkrahúsum og styrkja sjúkraflutninga." Álfheiður telur að sameining heilbrigðisráðuneytisins og félags- og tryggingamálaráðuneytisins útheimti tilfærslu verkefna. Óbreytt sé ráðuneytið of stórt og innan þess verkefni sem eiga illa saman. Hún segir eina ástæðu þess að hún skipti út stjórn Sjúkratrygginga Íslands hafa verið að stöðva síendurteknar yfirkeyrslur. Í ár stefnir í að stofnunin fari 2,5 milljarða fram úr fjárheimildum sínum. - shá / sjá
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Fleiri fréttir Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sjá meira