Bústólpi fær lífræna vottun fyrir framleiðslu kjarnfóðurs Erla Hlynsdóttir skrifar 14. desember 2010 15:29 Gunnar Á. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Vottunarstofunnar Túns, og Hólmgeir Karlsson, framkvæmdastjóri Bústólpa, og við afhendinguna í morgun
Vottunarstofan Tún hefur staðfest að fyrirtækið Bústólpi ehf. uppfylli kröfur um lífrænar aðferðir við framleiðslu á kjarnfóðri. Vottorð þessa efnis var formlega afhent í vinnslustöð fyrirtækisins á Akureyri í morgun. Bústólpi er fyrsta sérhæfða kjarnfóðurfyrirtækið hér á landi sem hlýtur vottun til lífrænnar framleiðslu á kjarnfóðri. Með vottun Túns er staðfest að Bústólpi noti viðurkennd hráefni við framleiðslu á hinu vottaða kjarnfóðri, að lífræn hráefni séu á öllum stigum vinnslu aðgreind öðrum efnum og afurðum, að aðferðir við úrvinnslu og blöndun samræmist reglum um lífræna framleiðslu, og að gæðastjórnun, skráningar og merkingar uppfylli settar kröfur. Fyrirtækið hefur haslað sér völl með framleiðslu á fóðri fyrir nautgripi, sauðfé, svín, hross og alifugla. Auk þess selur það sáðvöru, áburð og aðrar rekstrarvörur til landbúnaðar. Bústólpi hefur nú hafið nýtingu á lífrænu íslensku byggi til framleiðslu á kjarnfóðri fyrir lífræna nautgriparækt. Þýðingarmikið fyrir fyrirtækið Hólmgeir Karlsson, framkvæmdastjóri Bústólpa, segir þessa lífrænu vottun hafa mikla þýðingu og geri hún fyrirtækinu kleift að þjónusta þá vaxandi sprotagrein sem lífrænn landbúnaður er. Hér á landi stunda nú að jafnaði á milli 60 og 70 aðilar vottaða lífræna ræktun, vinnslu lífrænna hráefna og söfnun náttúruafurða. Þessir aðilar framleiða nokkur hundruð tegundir vottaðra afurða fyrir markað hérlendis og í vaxandi mæli einnig til útflutnings. Framleiðsla á vottuðu lífrænu kjarnfóðri er forsenda þess að búfjárrækt sem byggir að hluta eða öllu leyti á aðfengnum fóðurefnum geti tileinkað sér lífrænar aðferðir.Um 80 bændur og fyrirtæki með lífræna vottun Vottaðar lífrænar afurðir og náttúruafurðir hafa þá sérstöðu á markaði að allur ferill þeirra, frá ræktun eða söfnun hráefna, til pökkunar í neytendaumbúðir eða afhendingar í lausu, er undir eftirliti óháðs aðila, það er vottunarstofu sem fylgist með því að uppruni og meðferð afurðanna sé í samræmi við alþjóðlegar og íslenskar kröfur um lífræna framleiðslu. Vottunarstofan Tún hóf vottun lífrænna afurða á Íslandi árið 1996 og í Færeyjun árið 2006. Síðan þá hafa yfir 80 bændur og fyrirtæki hlotið vottun. Auk þess vottar Tún nú framleiðslu átta fyrirtækja á náttúruvörum og aðföngum til lífrænnar framleiðslu.Tenglar: Vottunarstofan Tún Bústólpi ehf.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira