Innlent

Exeter málið tekið fyrir i dag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, mætir fyrir dóm við þingfestingu málsins í júlí.
Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, mætir fyrir dóm við þingfestingu málsins í júlí.
Til stendur að fyrirtaka í Exeter málinu svokallaða fari fram í Héraðsdómi Reykjavikur á tíunda tímanum í dag, samkvæmt dagskrá á vef dómsins. Málið er það eina sem sérstakur saksóknari hefur ákært í enn sem komið er.

Þrír menn er ákærðir fyrir umboðsvik, en það eru fyrrverandi stjórnarformaður sparisjóðsins Byrs, fyrrverandi forstjóri Byrs og fyrrverandi forstjóri MP banka. Málið snýst um 1100 milljóna króna lán sem Byr veitti Exeter Holding á seinni hluta ársins 2008. Lánið var notað til þess að kaupa stofnfjárbréf af MP banka og tveimur stjórnarmönnum Byrs á yfirverði.

Þegar málið var þingfest í byrjun júlí neituðu þremenningarnir sök og fyrrverandi forstjóri MP banka sagði ásakanirnar tilhæfulausar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×