Vænir geithafrar saman í sæðistöku 6. nóvember 2010 06:00 Hér leggur geithafurinn Skuggi sitt af mörkum til viðhalds geitastofninum. Á myndinni eru Birna Baldursdóttir erfðafræðingur og Þorvaldur Jónsson hjá Búnaðarsamsamtökum Vesturlands. Fréttablaðið/Gva
Átta myndarlegir geithafrar eru nú á Hvanneyri, þar sem verið er að taka úr þeim sæði og frysta.„Tilgangurinn með því að safna sæði og frysta er að reyna að sporna við þeirri miklu skyldleikaræktun sem orðið hefur innan varnarhólfa og gefa geitfjáreigendum tækifæri á að fá erfðaefni úr öðrum landshlutum,“ segir Birna Kr. Baldursdóttir erfðafræðingur. Birna lauk nýlega meistaraprófi í erfðafræði frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Niðurstöður rannsóknar á íslenska geitastofninum sem gerð var við skólann í tengslum við meistaraprófið og byggð var á ættargögnum og DNA-greiningum sýndi svo ekki verður um villst að stofninn er mjög skyldleikaræktaður og erfðafjölbreytileiki með því allra lægsta sem finnst. Samkvæmt niðurstöðum þessarar rannsóknar er staða hans afar viðkvæm og íslenski geitastofninn í útrýmingarhættu. Þau Birna og leiðbeinandi hennar, Jón Hallsteinn Hallsson, lektor í erfðafræði við landbúnaðarháskólann, fengu styrk frá Erfðanefnd landbúnaðarins til að hefja söfnun hafrasæðis. Auk þess hefur Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir hjá Matvælastofnun, komið að verkefninu. Sæðingar hafa ekki verið stundaðar í geitfé nema í mjög litlum mæli og er þetta í fyrsta skipti sem sæði er fryst. Geitfjárstofninn taldist lengi vel ekki til hefðbundinna framleiðslukynja, heldur voru geiturnar einkum haldnar sem gæludýr. Undanfarin ár hefur þetta breyst. Geitakjöt selst vel og framleiddir eru ostar úr geitamjólk, auk þess sem ull og skinn eru nýtt. jss@frettabladid.is
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira