Reykvíkingar niðurgreiða skólavist fyrir börn úr nágrenninu Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. ágúst 2010 10:12 Núverandi skólayfirvöld hafa gert mikla bragabót á rekstri skólans.
Reykvíkingar niðurgreiða nám fyrir nemendur í Ísaksskóla úr öðrum sveitarfélögum, segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. Reykjavíkurborg greiðir mun hærra framlag með hverjum nemanda á aldrinum 6-9 ára í skólanum en önnur sveitarfélög. Samkvæmt upplýsingum Vísis nemur framlagið frá Reykjavík um 930 þúsundum króna á ári en framlög frá öðrum sveitarfélögum nema um 441 þúsund krónum. Hlutfall nemenda í skólanum utan Reykjavíkur er 25%. „Þetta er auðvitað óeðlilegt. Við höfum verið að tala máli þessa skóla við nágrannasveitarfélögin en þetta er ekki sanngjarnt," segir Dagur. Samþykkt var í borgarráði í gær að Reykjavíkurborg myndi kaupa húsnæði Ísaksskóla af skólanum. Skólastarfið sjálft verður hins vegar rekið með sama formi og áður. Formaður borgarráðs segir að skólinn hafi verið í fjárþröng og þetta hafi verið góð leið til að leysa úr þeim málum. Til standi að skólinn kaupi húsnæðið aftur á sama verði eftir fimm ár. Einsetning grunnskóla var sumum skólum erfið„Fyrst og fremst erum við náttúrlega að tryggja skólastarf í næstu viku. Það á að hefjast í næstu viku og það gengur ekki að stefna því í hættu með engum fyrirvara," segir Dagur. Hann telur að skólinn hafi verið í fjárþröng um nokkurt skeið. Lagfæringar sem þurfi að gera á skólahúsnæðinu hafi síðan verið dropinn sem fyllti mælinn þegar ákvörðun um að kaupa húsnæðið var tekin í gær. „Það má eiginlega segja að þessir skólagjaldaskólar hafi átt í erfiðleikum frá einsetningu skólans. Vegna þess að áður voru þessir skóla tvísetnir og jafnvel þrísetnir," segir Dagur og bendir á að þannig hafi skólinn átt hægara um vik með að afla sér meiri tekna. Dagur tekur skýrt fram að núverandi skólastjórnendur og forysta skólans hafi verið að taka á rekstri hans að undanförnu og hafi lagt fram rekstraráætlanir til næstu ára sem sýni frammá að rekstur skólans geti gengið upp.
Mest lesið Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Innlent Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Erlent Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Innlent Tveggja turna tal í Reykjavík Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Fleiri fréttir Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Sjá meira