Lausnin tímabundin eftir árs undirbúning 13. desember 2010 05:45 Helst er deilt um rekstur loftvarnakerfisins, en þar undir fellur rekstur ratsjárstöðva NATO. fréttablaðið/stefán
Ráðstöfun verkefna Varnarmálastofnunar liggur fyrir til bráðabirgða. Óvissu rúmlega fimmtíu starfsmanna er eytt með niðurstöðunni, segir formaður verkefnastjórnar. Stjórnsýslan við framkvæmd þess að leggja stofnunina niður er hins vegar harðlega gagnrýnd. Ríkisstjórnin ákvað í lok árs 2009 að leggja niður Varnarmálastofnun frá og með næstu áramótum. Það er hins vegar fyrst núna að samkomulag liggur fyrir á milli Ögmundar Jónassonar, dóms- og mannréttindaráðherra, og Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra um ráðstöfun verkefna stofnunarinnar. Öryggisvottanir og þjóðaröryggishluti stofnunarinnar færist til Ríkislögreglustjóra. Utanríkisráðuneytið heldur áfram utan um milliríkjasamskipti en önnur verkefni færast til Landhelgisgæslunnar tímabundið. Það á við um rekstur upplýsingakerfa, vöktun og eftirlit og umsjón mannvirkja. Það á að liggja fyrir 15. mars næstkomandi hvernig skipting verkefna verður til framtíðar. Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur gagnrýnt stjórnsýslu málsins. „Ég lagði til að fyrst yrði mótuð öryggisstefna fyrir Ísland og þá ákveðið hvaða verkefnum við ætlum að sinna og hvar þeim var best komið fyrir. Þá fyrst væri rætt um hvort leggja ætti niður stofnunina. Þetta var hundsað og menn óðu áfram með þekktum árangri. Það var byrjað á öfugum enda og framkvæmdin er þvert á það verklag sem Ríkisendurskoðun og fjármálaráðuneytið hafa mælt með.“ Ögmundur segir mikilvægast að fast land sé loks undir fótum starfsfólks en segir að kannski megi taka undir gagnrýni á stjórnsýsluna í málinu, eða að fyrst hafi verið tekin ákvörðun um að leggja stofnunina niður og síðan að leggjast yfir það hvernig verkefnunum yrði skipað niður. „Hins vegar vil ég horfa til framtíðar í þessu og á kostina. Við höfum þegar náð sparnaði með þeim breytingum sem hafa verið gerðar. Ég vil horfa á málið eins og það stendur en ekki hvernig átti að standa að málum í upphafi.“ Helst hefur staðið styr um hvernig rekstri loftvarnakerfisins verður háttað, en þar undir fellur rekstur ratsjárstöðva NATO á Íslandi. Starfsemin er nú tímabundið hjá LHG en einnig hefur verið rætt um að Isavia, áður Flugstoðir og Keflavíkurflugvöllur, taki við rekstrinum. Fyrir því er meirihlutavilji innan verkefnisstjórnar með breytingunum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. svavar@frettabladid.is Ögmundur Jónasson
Mest lesið „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Innlent Fleiri fréttir Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Sjá meira