ASÍ segir ríkisstjórnina sniðganga kröfur þeirra 13. desember 2010 16:00
Alþýðusamband Íslands segir að ekki blási byrlega varðandi samvinnu ríkisstjórnar og ASÍ fyrir komandi kjaraviðræður. Í yfirlýsingu segir sambandið að í síðustu viku hafi komið í ljós að frumvarp sem hafði verið í smíðum í félagsmálaráðuneytinu frá því í júní varðandi breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar, og unnið var með aðkomu aðila vinnumarkaðarins, hafði tekið veigamiklum breytingum. „Án nokkurs samráðs," segir ennfremur. „Upphaflega frumvarpið hafði það að markmiði að auka réttindi launafólks," segir ennfremur. „Það kvað á um lengingu bótatímabilsins úr 3 árum í 4 ár, að þátttaka í virkum vinnumarkaðsaðgerðum dragist ekki frá bótatímabili, framlengingu ákvæða um hlutabætur og sjálfstætt starfandi auk réttinda vegna 2 vikna orlofs og 5 daga veikindaleyfis án þess að slíkt skerði bætur." Þá segir að ríkisstjórnin hafi nú gert breytingar á frumvarpinu sem verkalýðshreyfingin telur óviðunandi. „M.a. sett inn ákvæði um að lenging bótatímans í 4 ár nái bara til þeirra sem misstu vinnuna eftir 1. maí 2008. Þessi breyting kemur sér afar illa fyrir marga og þá sérstaklega á Suðurnesjunum en fjölmargir á því svæði misstu vinnuna eftir brottför hersins." Í ljósi þessa segir ASÍ að lítill trúnaður ríki á milli sambandsins og ríkisstjórnarinnar í aðdraganda kjarasamninga „sem er vægast sagt slæmt veganesti enda búist við erfiðum samningaviðræðum." Þá segir að ágreingingurinn komi fram á versta tíma og bætist ofan á vanefndir ríkisstjórnarinnar varðandi framlög í Starfsendurhæfingarsjóð. „Forystusveit ASÍ átti fund með oddvitum ríkisstjórnarinnar á föstudag þar sem skilaboð verkalýðshreyfingarinnar til ríkisstjórnar voru skýr; orð skulu standa."
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Sjá meira