Innlent

Rúna í Stígamótum fær viðurkenningu Jafnréttisráðs

Guðrún Jónsdóttir, Rúna í Stígamótum, skarar fram úr á sviði jafnréttismála
Guðrún Jónsdóttir, Rúna í Stígamótum, skarar fram úr á sviði jafnréttismála
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, hlaut viðurkenningu Jafnréttisráðs fyrir árið 2010. Hún tileinkaði viðurkenninguna Stígamótum, Skottufélögunum 23 og konunum 50.000 sem hittust í bænum 25. október síðastliðinn í baráttugöngu í tilefni kvennafrídagsins.

Frá þessu er greint á vef Stígamóta.

Jafnréttisviðurkenningin var afhent í Iðnó á föstudag. Þetta er árviss viðburður og er viðurkenningin nú afhent í átjánda sinn. Viðurkenningu hafa hlotið einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×