Snjóflóðavarnir skapa störf 27. nóvember 2010 08:30 Svandís Svavarsdóttir. Samþykkt var á ríkisstjórnarfundi í gær að verja 350 milljónum króna úr Ofanflóðasjóði til að hefja tvö stór verkefni við uppbyggingu snjóflóðavarna í Neskaupstað og á Ísafirði. Hægt er að bjóða verkin út strax. Mynd/Valgarður Gíslason
Tvö stór og mannaflsfrek verkefni við uppbyggingu snjóflóðavarnagarða í Neskaupstað og á Ísafirði fara án tafar í útboð. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í gær að veita 350 milljónir króna úr Ofanflóðasjóði sem sérstaklega eru eyrnamerkt framkvæmdunum. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir að sameiginlegt minnisblað hennar og Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra þessa efnis hafi verið samþykkt, enda sé um afar mikilvæg verkefni að ræða. „Þetta er mikilvægt út frá byggðarsjónarmiðum en ekki síst sem atvinnuverkefni á þessum tveimur stöðum." Í fjárlagafrumvarpi næsta árs var gert ráð fyrir að 450 milljónum yrði varið úr Ofanflóðasjóði og því verða 800 milljónir til skiptanna til að byggja upp flóðavarnir. Framkvæmdunum í Neskaupstað og á Ísafirði var frestað árið 2009 vegna tilmæla AGS um samdrátt ríkisútgjalda. Þá átti að fresta öllum nýframkvæmdum við uppbyggingu flóðavarna til ársins 2013. Þetta hefur verið gagnrýnt harðlega, þar sem staða sjóðsins er góð. Eignir sjóðsins eru rúmlega sjö milljarðar króna. Á hverju ári gefa tekjustofnar sjóðsins um 1,3 milljarða króna. Reikna má með að vaxtatekjur sjóðsins, af sjö milljarða króna eign, séu á milli 800 og 900 milljónir á ári. - shá
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira