Ný lög um lögskráningu sjómanna taka gildi í dag 1. nóvember 2010 14:32 Ögmundur heimsótti Siglingamálastofnun fyrr í dag og vígði kerfið
Í dag taka gildi ný lög um lögskráningu sjómanna. Nýju lögunum fylgja þær breytingar helstar að lögskráning færist til útgerða og skipstjóra og framvegis verður skylt að lögskrá alla í áhöfn á öllum skipum sem notuð eru í atvinnuskyni. Siglingastofnun Íslands heldur utan um nýja kerfið og sér um lögskráningar þeirra sem þess óska. Í tilefni af breytingunum heimsótti Ögmundur Jónasson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Siglingastofnun og tók nýja kerfið formlega í notkun. Leitast var við að hafa skráningarkerfið þægilegt í sniðum og gekk ráðherra greiðlega vel að ljúka fyrstu lögskráningunni. Helstu breytingarnar eru:Lögskráningar og framkvæmd þeirra færist frá lögskráningarstjórum til skipstjóra og útgerða eða til Siglingastofnunar Íslands ef útgerðir kjósa að lögskrá ekki sjálfar.Skylt verður að lögskrá alla í áhöfn á öllum skipum sem gerð eru út í atvinnuskyni og eru skráð á íslenska skipaskrá, en skráningarskyld eru öll skip 6 metrar að lengd og lengri. Samkvæmt gildandi lögum er skylt að lögskrá á skip 20 brúttótonn og stærri.Óheimilt er að leggja skipi úr höfn nema allir skipverjar hafi verið lögskráðir.Útgerðarmaður og/eða skipstjóri getur lögskráð áhöfn síns skips á grundvelli rafrænna skilríkja eða veflykils ríkisskattstjóra. Þá þarf útgerð að fylla út umsóknareyðublað um aðgang skipstjóra og útgerðar að lögskráningu sjómanna sem nálgast má á heimasíðu Siglingastofnunar. Greiða þarf árlegt gjald kr. 3.000 frá og með árinu 2011 fyrir hvern einstakling sem fær aðgang. Að öðru leyti eru ekki innheimt gjöld vegna lögskráningar.Vilji útgerð eða skipstjóri ekki sjá um lögskráninguna sjálf á sitt skip getur hún/hann óskað eftir því að Siglingastofnun annist lögskráninguna. Þá þarf útgerð að fylla út beiðni til Siglingastofnunar Íslands um lögskráningu sjómanna á skip í hvert sinn sem nýskrá á sjómann á skipið, stöðubreyta eða afskrá, en eyðublaðið má nálgast á heimasíðu Siglingastofnunar. Greiða þarf lögskráningargjald með sama hætti og verið hefur, þ.e. kr. 830 fyrir hverja lögskráningu og verður gjaldið innheimt mánaðarlega með greiðsluseðli. Frekari upplýsingar má nálgast á vef Siglingamálastofnunar.
Mest lesið Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent „Það koma bara færri“ Innlent „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Sérsveitarmenn um borð í Þór Innlent Fleiri fréttir Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum Sjá meira