Innlent

Kristrún Heimisdóttir ráðin aðstoðarmaður Árna Páls

Erla Hlynsdóttir skrifar

Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur hefur verið ráðin aðstoðarmaður Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra. Kristrún situr í nýkjörnu framkvæmdaráði Sterkara Íslands, samtaka evrópusinna. Hún starfaði áður sem aðstoðarkona Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra á árunum 2007 til 2009.

Kristrún er menntaður lögfræðingur og hefur starfað sem slíkur hjá LEX lögmannsstofu, Samtökum iðnaðarins, félags- og tryggingamálaráðuneytinu og umboðsmanni Alþingis. Hún var framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar og hefur kennt lögfræði og heimspeki við Háskólana í Reykjavík, á Akureyri og á Bifröst.

Hún var fulltrúi Íslands í Stoltenberg-nefndinni um öryggis- og varnarmál Norðurlanda 2008 til 2009, sat í nefnd um endurskoðun stjórnarskrárinnar 2005 til 2007 og var varamaður í Seðlabankaráði 2003 til 2007 og varaþingmaður 2003 til 2009.

Kristrún hefur ritað fræðigreinar og haldið fjölda fyrirlestra á sviði lögfræði, réttarheimspeki og alþjóðamála.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×