Innlent

Ögmundur vonast eftir friðsamlegu þinghaldi

Uppþot varð í Héraðsdómi í maí þegar málið var tekið fyrir. Tveir voru handteknir.
Fréttablaðið / valli
Uppþot varð í Héraðsdómi í maí þegar málið var tekið fyrir. Tveir voru handteknir. Fréttablaðið / valli
Mál níu manna sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi í búsáhaldabyltingunni verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þinghaldið í málinu hefur ekki verið átakalaust til þessa. Í maí var lögregla kvödd til og fjarlægði hún nokkra viðstadda úr troðfullum dómsalnum með valdi eftir að þeir neituðu að yfirgefa hann. Ragnar Aðalsteinsson, verjandi nokkurra sakborninga, kallaði aðfarirnar mannréttindabrot í bréfi til ráðherra.

Ögmundur Jónasson, nýr dómsmálaráðherra, fór sem óbreyttur þingmaður ekki leynt með óánægju sína með það að Alþingi skyldi óska eftir því við ríkissaksóknara að ákært yrði í málinu, meðal annars fyrir brot gegn 100. grein almennra hegningarlaga, sem kveður á um árás á Alþingis, svo því eða sjálfstæði þess sé hætta búin.

Spurður um málið nú segist Ögmundur þurfa að fara varlega í yfirlýsingar sem ráðherra. „Ég skil tilfinningar fólks og óánægju með að málið skyldi yfirhöfuð fara inn í þennan farveg, en þarna er það,“ sagði Ögmundur. „Þannig að mínar óskir standa bara í þá átt að þessi leiðindamál verði leidd til lykta með eins friðsamlegum hætti og hægt er.“ - sh



Fleiri fréttir

Sjá meira


×