Íslensk kona höfundur fyrsta biskupsins í skák Ingimar Karl Helgason skrifar 8. september 2010 19:25 „
Íslandssagan er að breytast," segir Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, sem telur að fornir taflmenn sem geymdir eru í breska þjóðminjasafninu, hafi verið skornir út hér á landi, úr rostungstönnum frá Grænlandi. Það muni breyta hugmyndum manna um íslenskar miðaldir. Guðmundur telur sig líka hver bjó mennina til. Það var árið 1831 að yfir níutíu taflmenn, útskornir úr rostungstönnum, fundust á eyjunni Lewis, eða Ljóðhúsum, í Suðureyjum, undan ströndum skotlands. Þá kann að hafa rekið á land eftir skipbrot mörgum öldum fyrr. Þessir taflmenn eru mikið listaverk. Þeir eru taldir vera frá því um 1200. Um það er ekki deilt. En fræðimenn hafa almennt talið að þeir hefðu verið búnir til í Þrándheimi í Noregi, þar sem var erkibiskupsstjóll. Flestir taflmannanna eru nú geymdir í British Museum og þykja miklar gersemar. Þá eru 11 þeirra geymdir í Skotlandi. Skákbloggari New York Times, hefur fjallað um málið, og minnist á nýjar kenningar um uppruna mannanna; nefnilega þær að þeir séu íslenskir. Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, telur svo vera, og vísar til þess að orðið biskup, í tengslum við skák, sé aðeins notað í íslensku, færeysku og ensku. Í öðrum Norðurlandamálum og þýsku sé notað orðið hlaupari um þennan mann. Hann telur jafnframt, með vísan til orðsins 'biskupsmát' sem finnst hér á fornum bókum, að orðið í þessari merkingu, hafi borist í ensku úr íslensku. „Það finnst í Mágus sögu frá því snemma á fjórtándu öld, en Oxford orðabókin kannast ekki við orðið biskup í tengslum við skákina í ensku fyrr en á seint á fimmtándu öld. Það er sami tími og við köllum ensku öldina," segir Guðmundur. Guðmundur segir að Íslandssagana sé að breytast. Guðmundur nefnir enn fremur að ólíklegt verði að teljast að taflmennirnir hafi verið búnir til undir handarjaðri erkibiskups í Þrándheimi, sé litið til stöðu biskupsins á skákborðinu. Þar sé hann settur undir kóng og drottningu og það hafi biskupinn norski varla viljað. „Erkibiskupinn fékk enda páfann til að setja Sverri konung í bann á þessum tíma," segir Guðmundur. Hann telur samt sem áður að tenging geti verið við biskipusstól. Nefnilega þann í Skálholti hér uppi á Íslandi. Líklegt sé að Margrét haga, sem svo var kölluð, hafi skorið mennina út. Hún hafi verið þarna á tímum Páls biskups um tólfhundruð. Þess sé getið í heimildum að hún hafi listilega skorið út úr rostungstönnum. Páll hafi sjálfur verið afkomandi konunga og stoltur af upprunanum. „Í hans huga hefði biskupinn geta staðið við hlið konungsins, jafnvel á skákborðinu," segir Guðmundur. Þær hugmyndir að Íslendingar hafi sjálfir búið taflmennina til eru ekki alveg nýjar af nálinni. Dr. Helgi Guðmundsson prófessor í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands, benti á það fyrir rúmum áratug, að taflmennirnir gætu verið íslenskir eða frá Grænlandi. Þar var þá mikil byggð norænna manna og mikill útflutningur þaðan af ýmsum varningi, eins og rostungstönnum. Helgi bendir meðal annars á að útskornir taflmenn hafi verið mun verðmætari en óunnar rostungstennur. Meginstef í kenningum Helga er að Ísland hafi á miðöldum ekki verið útnári, heldur miðstöð; miðstöð verslunar frá Grænlandi. Guðmundur G. Þórarinsson hyggst taka þátt í málstofu um taflmennina í Skotlandi um helgina og leitast þar við að sannfæra hið erlenda fræðasamfélag um hugmyndir sínar um uppruna mannanna. Sannfærist menn um þetta segir Guðmundur að það muni breyta Íslandssögunni. Íslendingar séu þekktir fyrir fornsögur sínar, en nú þyki sér sýnt að þeir hafi ekki síður verið í fararbroddi í útskurði, en þessir taflmenn þykja vera einar mestu gersemar sem varðveittar eru frá miðöldum í British Museum.
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Fleiri fréttir Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Sjá meira