Innlent

Hvergerðingar vilja kaupa hitaveituna af OR

Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðis vill hefja viðræður við Orkuveitu Reykjavíkur um að kaupa aftur Hitaveitu Hveragerðis sem Orkuveitan keypti árið 2004. Bæjarstjóri Hveragerðis segir það óásættanlegt að íbúar Hveragerðis þurfi að taka á sig gjaldskrárhækkanir til að greiða niður óráðsíu í rekstri Orkuveitunnar.

Yfirstjórn Orkuveitunnar fundaði í morgun með hagsmunaðilum vegna þeirra gjaldskrárhækkana sem hafa verið boðaðar. Á fundinum voru meðal annars fulltrúar sveitarfélaganna en Orkuveitan hefur boðað 28 prósenta hækkun.

Orkuveita Reykjavíkur keypti Hitaveitu Hveragerðis árið 2004 fyrir 260 milljónir króna. Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðis vill nú hefja viðræður við Orkuveituna um að kaupa hitaveituna til baka. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis, gagnrýnir gjaldskrárhækkanir Orkuveitunnar og segir óásættanlegt að íbúar Hveragerðis þurfi að taka á sig þessar hækkanir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×