Innlent

Samfylkingin fagnar hugsanlegri komu ECA

Stjórn Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ fagnar því að Kristján L Möller fráfarandi samgönguráðherra hafi veitt Flugmálastjórn heimild til að hefja undirbúning og afla upplýsinga um þotuviðhaldasverkefni ECA á Keflavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórninni.

Þar segir að áætluð starfsemi ECA byggist á sömu forsendu og fjöldi íslenskra fyrirtækja sem til margra ára veittu fjölda íslendinga störf á Keflavíkurflugvell.

Að sögn stjórnar Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ felst starfsemi ECA í rekstri og viðhaldi vopnlausra flugvéla sem notaðar verða til æfinga erlendis og flogið af atvinnuflugmönnum.

„Standa vonir til þessað fyrirtækið muni skapa fjöldan allan af vellaunuðum hátæknistörfum á Suðurnesjum þar sem atvinnuleysið er hvað mest auk þess að störf skapist við undirbúning og uppbyggingu," segir svo í stjórninni.

Þá ítrekar stjórnin fyrri afstöðu sína þess efnis að staðan í atvinnumálum á Suðurnesjum kalli á að stjórnvöld kanni allar þær hugmyndir sem fram koma um atvinnusköpun til fulls á fordómalausan hátt áður en afstaða er tekin til þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×