Krefst afsagnar Ragnars úr stjórn lífeyrissjóðs verslunarmanna Erla Hlynsdóttir skrifar 8. september 2010 08:20 Ragnar Önundarson er ekki hæfur að mati stjórnarmanns í VR
Bjarki Steingrímsson, stjórnarmaður í VR, leggur til að Ragnar Önundarson segi af sér sem varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs Verslunarmanna þar sem hann starfaði sem framkvæmdastjóri Kreditkorta þegar fyrirtækinu var gert að greiða 185 milljóna króna stjórnvaldssekt. Sektin kom til vegna þátttöku Kreditkorta í samkeppnishamlandi brotum á markaði. Kreditkortafyrirtækjunum, Kreditkort, Fjölgreiðslumiðlun og Greiðslumiðlun var gert að greiða alls 735 milljónir króna í sektir fyrir brot sín. Bjarki kemur til með að leggja fram tillögu um afsögn Ragnars á stjórnarfundi VR síðar í dag en Ragnar situr í stjórn lífeyrissjóðsins fyrir hönd VR. Í tillögu þeirri sem Bjarki leggur fyrir stjórnarfundinum: „Vart þarf að nefna að félagsmenn VR, jafnt og aðrir landsmenn sem og fyrirtæki, hafa greitt þessa sekt með auknum álögum á kreditkortum og annarri þjónustu sem greiða þarf fyrir til að geta þjónustað korthafa og sölu aðila á landinu. Að ofantöldu nefndu, er það eindregin ósk stjórnar VR, að Ragnar Önundarson segi sig frá trúnaðarstörfum er hann gegnir fyrir hönd VR. Jafnt í stjórn Lífeyrissjóðs Verslunarmanna sem og úr stjórn Framtakssjóðs Íslands, enda telur stjórn VR að traust og trúverðugleiki verði ekki byggt upp á Íslandi með Ragnari Önundarsyni og hans líkum í ábyrgðarmiklum trúnaðarstörfum fyrir hönd félagsmanna okkar. Óskar stjórn VR eftir því, að varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs Verslunarmanna sýni okkur þennan skilning með afsögn sinni nú þegar." Fregnum af afstöðu stjórnar VR til tillögu Bjarka má vænta síðar í dag. Bjarki er fyrrverandi varaformaður stjórnar VR en stjórnin samþykkti tillögu um vantraust á Bjarka sem varaformann í desembermánuði. Ástæðurnar voru trúnaðarbrestur og samstarfsörðugleikar. Að mati stjórnar tók steininn úr þegar Bjarki hélt ræðu á útifundi á Austurvelli þann 5. desember þar sem hann lítilsvirti ekki eingöngu störf eigin félags heldur verkalýðshreyfingarinnar í heild sinni, að fram kom í tilkynningu sem stjórn VR sendi frá sér í desember.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira