Undirritaði viljayfirlýsingu um jafnréttismál í Færeyjum 8. september 2010 14:03 Jóhanna Sigurðardóttir.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Kaj Leo Johannessen, lögmaður Færeyja, funduðu í dag í Færeyjum og undirrituðu við það tækifæri viljayfirlýsingu um aukið samstarf forsætisráðuneytanna samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu. Samstarfið tekur einkum til jafnréttismála og verkefna varðandi breytingar og þróun í stjórnsýslunni og ráðuneytum. Í tilkynningunni segir að ráðherrar færeysku ríkisstjórnarinnar hafi jafnframt átt fund með forsætisráðherra í morgun og kynnti forsætisráðherra þeim meðal annars stöðu efnahagsmála, jafnréttismál og fyrirhugað stjórnlagaþing. Forsætisráðherra og lögmaður ræddu ennfremur aukið samstarf landanna á sviði jafnréttismála, aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu, tvíhliða samstarf og fyrirhugaðar breytingar á stjórnarráði Íslands. Forsætisráðherra og lögmaður heimsóttu í gær Norðurlandahúsið, Listasafn Færeyja og Þjóðminjasafn Færeyja. Lögmaður hélt forsætisráðherra kvöldverð í Kirkjubæ, sem hefur mikið menningarsögulegt gildi í Færeyjum. Heimsóknin til Færeyja var fyrsta opinbera heimsókn forsætisráðherra frá því að hún tók við embætti. Á blaðamannafundi sem haldinn var í dag þakkaði forsætisráðherra færeyska lögmanninum sérstaklega vel fyrir móttökurnar og lagði áherslu á það góða og trausta samband sem hefði verið og yrði áfram á milli þjóðanna. Athygli vekur að ekkert er minnst á ummæli færeyska þingmannsins, Jenis av Rana, eða viðbrögð við þeim í tilkynningunni.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Sjá meira