Innlent

Leita viðbragða hjá almenningi

Skógræktin vill fá viðbrögð almennings við stefnumótun í skógræktarmálum. Fréttablaðið/Valli
Skógræktin vill fá viðbrögð almennings við stefnumótun í skógræktarmálum. Fréttablaðið/Valli
Nefnd leidd af skógræktarstjóra hefur sent drög að nýrri stefnumótun í skóg-ræktarmálum Íslendinga til umsagnaraðila. Í ljósi krafna um opna stjórnsýslu býður Skógrækt ríkisins almenningi að gera athugasemdir við drögin. Frekari upplýsingar og drögin sjálf má finna á vefsíðu Skógræktar ríkisins, skogur.is. Athugasemdir þurfa að berast í tölvupósti til Þrastar Eysteinssonar, sviðsstjóra skógræktarinnar, fyrir 20. september. - þj



Fleiri fréttir

Sjá meira


×