Innlent

Dæmdir fyrir að brjóta tönn í unglingi

Héraðsdómur Reykjavíkur. Piltarnir voru dæmdir fyrir að ganga í skrokk á unglingi.
Héraðsdómur Reykjavíkur. Piltarnir voru dæmdir fyrir að ganga í skrokk á unglingi.

Tveir átján ára piltar voru dæmdir fyrir að ganga í skrokk á fjórtán ára dreng og brjóta í honum framtönn í janúar á síðasta ári.

Piltarnir hlutu 45 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brotið en báðir játuðu þeir skýlaust að hafa gengið í skrokk á drengnum.

Báðir piltarnir eru með hreinan sakaferil en í dómsorði segir að ekki verið litið framhjá alvarlegu broti þeirra. Þeir veittust í sameiningu að fjórtán ára dreng, sem er búsettur í Mosfellsbæ.

Haldið þeir skilorð í tvö ár frá birtingu dómsins þá fellu refsingin niður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×