Aukið eftirlit með farsímanotkun ökumanna 8. september 2010 14:48 Ökumenn sem nota ekki stefnuljós mega búast við athugasemdum lögreglu
Lögreglan mun á næstu vikum leggja sérstaka áherslu á eftirlit með farsímanotkun ökumanna án handfrjálss búnaðar og notkun stefnuljósa. Þá mun lögreglan fylgjast með og gera athugasemdir við þá ökumenn sem ekki eru með tvö skráningarmerki á ökutækjum sínum eins og reglur segja til um eða skráningarmerkin ógreinileg einhverra hluta vegna. Ökumenn geta búist við sektum og að verða boðaðir með ökutæki sín til skoðunar séu þessi atriði ekki í lagi. Farsímanotkun án handfrjálss búnaðar Talsvert er um það að ökumenn tali í farsíma við akstur án notkunar handfrjálss búnaðar. Slíkt er óheimilt og til þess fallið að draga athygli frá akstrinum og gerir akstur erfiðari. Akstur án fullrar athygli og möguleika á að geta brugðist við óvæntum aðstæðum er hættulegur. Ökumenn eru því hvattir til að tala ekki í farsíma án handfrjálss búnaðar og virða með því rétt annarra vegfarenda til öryggis í umferðinni um leið og þeir gæta að eigin öryggi. Stefnuljósanotkun Notkun stefnuljósa er mikilvægt fyrir öryggi í umferð. Þrátt fyrir það má ítrekað sjá hvar ökumenn skipta um akreinar og fara út úr hringtorgum án þess að gefa stefnuljós svo dæmi séu tekin. Það skapar óþægindi og öryggisleysi fyrir aðra vegfarendur og hættu. Af þessum sökum hvetur lögreglan ökumenn til að nota stefnuljós ökutækja sinna og stuðla þannig að öruggara umhverfi fyrir alla vegfarendur. Skráningarmerki Á bifreiðum skulu skráningarmerki vera bæði að framan og aftan. Þau skulu sýnileg og aðgengileg. Stöku bifreiðar eru hinsvegar einungis með eitt skráningarmerki . Slíkt er óheimilt. Eigendur þeirra ökutækja, sem svo er ástatt um, eru hvattir til að gera bragarbót á svo ekki þurfi að koma til aðgerða lögreglu.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira