Glæpamenn stálu flatskjá af gamalmennum Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. ágúst 2010 13:00 Það er virkt starf eldri borgara á Álftanesi. Flatskjárinn sem var stolið er þarna í baksýn.
Eldri borgarar á Álftanesi urðu fyrir því óláni að á þriðjudagsmorgun var brotist inn í félagsaðstöðu þeirra og flatskjá sem var í þeirra eigu stolið. Guðrún Jónsdóttir, formaður Félags eldri borgara á Álftanesi, segir að þetta sé tilfinnanlegt tjón fyrir þau. Sérstaklega í ljósi þess að staða sveitarfélagsins Álftaness sé það bágborin að engin tök séu á því að kaupa nýjan flatskjá. Félagið er tryggt hjá TM en Guðrún er ekki bjartsýn á að fá tjónið bætt. Hún segir skaðann vera tilfinnanlegan enda margir sem nýti sér aðstöðuna. „Djáknin okkar ætlaði að vera með bíósýningar í vetur fyrir aldraða einu sinni í mánuði. Hvernig sýnir hún bíó núna. Þetta er fólk sem fer ekki í bíó og er ekki með Stöð 2, hefur einfaldlega ekki efni á því," segir Guðrún. „Það er enginn garður sem er lægri. Þetta minnir mig á þegar það voru einhverjir vitleysingar sem réðust á hana Ásdísi Jennu og stálu af henni GSM síma í Kringlunni. Þetta er svona álíka stórmannlegt," segir Guðrún og vísar í frásagnir fjölmiðla fyrir fáeinum misserum af því þegar óprúttnir aðilar stálu síma af konu sem bundin er við hjólastjól. Guðrún skorar á þann sem tók flatskjáinn að skila honum aftur til lögreglunnar eða til sín.
Mest lesið Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Valgarð Már er látinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Innlent Mætti með eggvopn á skemmtistað Innlent Éljagangur og slabb í kortunum Veður Fleiri fréttir Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Sjá meira