Innlent

Vilja mansalsathvarf

Unnið er að því að koma á fót svo kölluðum mansalsathvörfum þar sem hægt að er vernda fórnarlömb skipulagðrar glæpstarfsemi. Hildur Jónsdóttir, formaður samhæfingarhóps gegn mansali, segir afar brýnt að koma hugsanlegum fórnarlömbum í öruggt skjól.

Flestum er í fersku minni þegar lögreglan lýsti í október í fyrra eftir litháískri stúlku sem grunur lék á að væri fórnarlamb mansals.

Lögreglan fann stúlkuna eftir leit en hún hafði þá aftur lent í klóm mannanna sem ætluðu að gera hana út í vændi. Þeir voru í þessum mánuði dæmdir sekir af ákæru um mansal og sýnt þótti að stúlkan hafi verið í vændisánauð frá því hún var 17 eða 18 ára.

Í kjölfar þessa máls hefur verið hugað að því hvernig megi tryggja vernd hugsanlegra fórnarlamba mansals.

í Háskólanum í Reykjavík var í dag rætt um hvort mansal og vændi væri vandamál á Íslandi en þeirri spurningu svöruðu fulltrúi ríkissaksóknara og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu játandi.

Hildur segir ljóst að staðan sé orðin þannig á Íslandi að hægt sé að koma fórnarlömbum skipulagðrar glæpastarfsemi í öruggt skjól eins kostur er.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×