Ágætis bíójól fram undan 23. desember 2010 05:00 Kvikmyndin Tron þykir mikið augnakonfekt en hún skartar Óskarsverðlaunahafanum Jeff Bridges í aðalhlutverki. Kvikmyndin Gauragangur verður frumsýnd á annan í jólum eins og Little Fockers. Á nýársdag taka síðan trúðarnir Casper og Frank öll völd í íslenskum kvikmyndahúsum þegar Klovn: The Movie verður frumsýnd.
Jól og áramót eru yfirleitt ágætis tími til að skella sér í kvikmyndahús. Íslenskar unglingaraunir, tæknibrelluskrímsli og danskir grínistar eru meðal þess sem rekur á fjörurnar. Kvikmyndin Gauragangur var frumsýnd í gær í Smárabíói en hún fer í almennar sýningar á annan í jólum. Þetta er önnur kvikmynd Gunnars Björns Guðmundssonar í fullri lengd, sú fyrsta hét Astrópía og sló eftirminnilega í gegn. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Ólafs Hauks Símonarsonar og segir frá raunum og ævintýrum hins unga Orms Óðinssonar og pælingum hans um lífið og tilveruna. Hópur ungra og upprennandi leikara fer með aðalhlutverkin í myndinni, þar fremst í flokki eru þau Alexander Briem sem leikur Orm, Hildur Berglind Arndal og Eygló Hilmarsdóttir. Þau eru dyggilega studd af reynsluboltum á borð við Stein Ármann, Þorstein Bachman og Þrúði Vilhjálmsdóttur. Jeff Bridges leikur eitt aðalhlutverkanna í tæknibrellurisanum Tron: Legacy sem verður frumsýndur í kvikmyndahúsum um helgina. Bridges lék einmitt einnig aðalhlutverkið í samnefndri mynd sem Disney-fyrirtækið frumsýndi fyrir næstum þrjátíu árum. Tron segir frá hinum unga og rótlausa Sam Flynn, sem á erfitt með að sætta sig við hvarf föður síns fyrir tuttugu árum. Sá var einn fremsti stafræni hönnuður heims og hafði hannað heim sem hann taldi geta breytt vitundarstigi jarðarbúa. Flynn kemst á snoðir um hvar þessi heimur er geymdur og fyrr en varir er hann kominn á slóð síns horfna föður. Auk Bridges leika þau Garret Hedlund og Olivia Wilde aðalhlutverkin í fyrstu mynd leikstjórans Joseph Kosinski. Gamanmyndin Little Fockers verður frumsýnd á annan í jólum en hún er þriðja myndin um ansi skrautleg samskipti Gaylord Focker og tengdapabba hans Jacks. Að þessu sinni er það barnaafmæli sem er sögusviðið og Jack hefur eðlilega miklar áhyggjur af því að Gaylord sé ekki vandanum vaxinn. Aðalhlutverkin eru sem fyrr í höndum Bens Stiller og Roberts De Niro en meðal annarra leikara má nefna Jessicu Alba, Barböru Streisand, Dustin Hoffman og Owen Wilson. Og svo eru það dönsku trúðarnir í Klovn, þeir Frank Hvam og Casper Christensen. Myndin hefur slegið rækilega í gegn í Danmörku og hennar er beðið með mikilli eftirvæntingu hér á landi enda nutu þættirnir gríðarlegra vinsælda. Myndin er vegasaga og segir frá því þegar Frank ákveður að taka á sig rögg og hyggst keppa í kanósiglingum ásamt ellefu ára gömlum frænda sínum. Því miður, fyrir Frank og frændann er Casper með í för og eins og áhorfendum Klovn ætti að vera kunnugt nær heili Caspers aðeins utan um eitt atriði þegar hann er sloppinn frá frúnni; að eiga náin kynni við hitt kynið. Myndin verður frumsýnd 1. janúar. freyrgigja@frettabladid.is Alexander Briem/ Fá góðar myndir sem eru auðveldar til útskurðar
Mest lesið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Lífið „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Lífið Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Lífið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið Saga jarðaði alla við borðið Lífið Fyrsta stiklan úr Íslandsstórvirki Nolan mætt á netið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Sjá meira