Borgarbúa súpa seyðið af fjárfestingarstefnu Orkuveitunnar 28. ágúst 2010 19:15 Sigurður Jóhannesson, hagfræðingur Hagstofnunar. Mynd/Vilhelm
Verðtryggð lán heimilanna hækka um á fimmta milljarð króna alls vegna verðbólguáhrifa af hækkun gjaldskrár Orkuveitu Reykjavíkur. Hagfræðingur segir Reykvíkinga súpa seyðið af fjárfestingarstefnu fyrirtækisins. Gjaldskrárhækkunin tekur gildi 1. október. Þá mun rafmagnsverð hækka um 11 prósent, verð á heitu vatni um 35 prósent og gjald fyrir dreifingu rafmagns um heil 40 prósent. Orkuveitan hefur látið fjölmiðlum nánari skýringar á áhrifum hækkunarinnar í té. Við skulum skoða rafmagnsreikningana fyrir 100 fermetra íbúð í fjölbýli með fjóra í heimili og meðal rafmagns- og heita vatns notkun. Fyrir hækkunina greiðir heimilið um 4000 krónur fyrir hita og 4800 krónur fyrir rafmagn, alls um 8.800 krónur fyrir orkunotkun sína. Eftir gjaldskrárbreytinguna hækkar kostnaðurinn við heitt vatn um 35% en rafmagnið um tæp 22%, mest vegna hækkunar á dreifikostnaði. Alls greiðir heimilið því rúmlega 2400 krónum meira fyrir rafmagnið á mánuði, eða tæp 30 þúsund á ári. Búist er við að vísitala neysluverðs hækki um 0,4% vegna gjaldskrárhækkunarinnar, en til samanburðar má nefna að samanlögð hækkun vísitölunnar vegna allra þátta nam 0,25% í ágúst. Verðtryggð lán heimilanna hjá bönkum, lífeyrissjóðum og öðrum lánastofnunum samkvæmt nýjustu aðgengilegu hagtölum nema alls um 1.125 milljörðum. Þessi lán munu hækka um tæplega 4,5 milljarð alls vegna verðbólguáhrifa af gjaldskrárhækkun orkuveitunnar einnar. Gjaldskrárhækkunin er komin til þar sem Orkuveitan getur að óbreyttu ekki staðið undir endurgreiðslu lána. Eins og fréttastofa hefur greint frá tífölduðust skuldirnar án innan við áratug. Að sögn Sigurðar Jóhannessonar, hagfræðings hjá Hagfræðistofnun, munar þar helst um Hellisheiðarvirkjun. Þá hafi skuldirnar einnig aukist talsvert vegna fjárfestingar í hitaveitum á Suður- og Vesturlandi. Sigurður segist telja að fyrirtæki eins og Orkuveitan hefðu átt að halda sig við grunnhlutverk sitt en láta vera að fara inn á markaði þar sem samkeppni ríkir á. Hann segir Reykvíkinga nú súpa seyðið af fjárfestingarstefnu fyrirtækisins.
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Sjá meira