Innlent

Fullorðnir karlmenn á slysadeild eftir reiðhjólaslys

Tveir karlar voru fluttir á slysadeild eftir reiðhjólaslys á göngustíg í Grafarvogi um kvöldmatarleytið í gær. Ekki er ljóst hvernig óhappið vildi til, en þeir voru báðir á reiðhjólum.

Annar mannanna var hjálmlaus og er talið að hann hafi rotast við áreksturinn, en hann var illa áttaður þegar lögregla kom á vettvang. Hinn reiðhjólamaðurinn var með hjálm og virðist hafa sloppið örlítið betur, en fékk þó skurð á höfuðið, segir í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×