Lengsta samdráttarskeiðinu að ljúka 4. nóvember 2010 06:00 Þórarinn G. Pétursson
Efnahagsbati hér á landi verður drifinn af einkaneyslu og fjárfestingu, ekki af útflutningi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands. Bankinn gerir ráð fyrir að efnahagsbati hafi hafist á þriðja fjórðungi þessa árs með vexti landsframleiðslu. Gert er ráð fyrir að þessi þróun haldi áfram á lokafjórðungi ársins. „Gangi þetta eftir lýkur samdráttarskeiðinu á þriðja ársfjórðungi, eftir að hafa staðið í tvö og hálft ár,“ sagði Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, á kynningarfundi bankans í gær. Hann benti á að samdráttarskeiðið hér væri það lengsta meðal helstu iðnríkja. Spá bankans gerir ráð fyrir því að samdráttur á öðrum ársfjórðungi verði minni en ráð er fyrir gert í óendurskoðuðum tölum Hagstofu Íslands, 6,9 prósent í stað 8,4 prósenta. Spáin er nokkurri óvissu háð og benti Þórarinn á að meðal þess sem hægt gæti á bata væri bakslag í alþjóðlegum efnahagsbata, dræmari aukning einkaneyslu vegna skuldsetningar heimila, frekari tafir í orkutengdum fjárfestingum og ef launahækkanir í komandi kjarasamningum yrðu umfram það sem samrýmdist verðstöðugleika. Hækkanir umfram 3,5 til 4,5 prósent sagði Þórarinn meiri en svo að samrýmdust stöðugleikanum. Þær myndu á endanum leiða til verðbólgu eða aukins atvinnuleysis.- óká
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira