Innlent

Björgunarsveitarmaður synti 40 metra í beljandi straumi

Gissur Sigurðsson skrifar
Björgunarsveitarmaður frá Kirkjubæjarklaustri vann það afrek í gærkvöldi að synda með líflínu um fjörutíu metra kafla í beljandi straumi Núpsvatna yfir á eyri í miðju fljótinu, til að koma þremur mönnum þar til bjargar, sem sátu þar í sjálfheldu í bíl sínum og komust hvergi vegna vatnavaxta.

Með línunni var svo björgunarbátur dreginn út að eyrinni og mennirnir aftur í land og sakaði engan. Til stóð að skjóta línu yfir á eyrina og draga mennina í björgunarstól í land, en þegar það gekk ekki, lagðist björgunarsveitarmaðurinn til sunds og leysti málið. -




Fleiri fréttir

Sjá meira


×