Segja sjávarútveginn tapa milljörðum vegna ákvörðunar ráðherra 14. desember 2010 19:30
Saltfiskverkendur segja að íslenskur sjávarútvegur tapi milljörðum króna vegna ákvörðunar sjávarútvegsráðherra að banna notkun svokallaðra fosfata í saltfiski frá áramótum. Talsmaður stærsta framleiðandans, Vísis í Grindavík, segir ákvörðun ráðherra óskiljanlega. Svokölluð fjölfosföt eru orðin allsráðandi hérlendis við verkun saltfisks til að gera hann hvítari og stinnari, og seinka því að hann gulni. Íslendingar og aðrir, sem náð hafa tökum á þessari aðferð, hafa þannig fengið hærra verð. Sveinn Ari Guðjónsson, framleiðslu- og sölustjóri Vísis, segir að á dýrustu markaðssvæðum Evrópu, Ítalíu, Grikklandi og Spáni, vilji neytendur ekki gulan fisk. Þeir vilji bara hvítan fisk. Efnið geri það að verkum að hvíti liturinn varðveitist lengur og betur. Fosfötin er alþekkt í matvælaframleiðslu, og meðal annars sett í kjöt, osta og gosdrykki, en einnig frosinn þorsk og hafa ekki áhrif á bragð. Íslenskir saltfiskframleiðendur segja að þegar listi yfir leyfða notkun var settur saman hjá Evrópusambandinu hafi notkun í saltfiski ekki verið þekkt og hann því ekki verið skráður. Sveinn segir að það standi ekki svart á hvítu hjá Evrópusambandinu að það megi nota þetta efni í saltfisk. En það standi heldur ekki að það megi ekki. Hérlendis telja margir að það sé einkum vegna þrýstings frá samkeppnisaðilum í Noregi sem Eftirlitsstofnun EFTA krafðist banns hérlendis. Það muni valda því að margir salfiskverkendur færi sig yfir í ferskan þorsk og hafa dómínó-áhrif yfir alla greinina, að sögn Sveins, og það endi í lækkuðu fiskverði. "Þannig að við erum að verðfella allan íslenskan þorsk bara á einu bretti. Það er bara þannig," segir Sveinn Ari. Menn horfi upp á gríðarlegt tjón, sem hlaupi á milljörðum króna. Evrópusambandið er að skoða umsókn um að fosföt verði leyfð í saltfiski og telur Sveinn að sjávarútvegsráðherra hefði átt að bíða með bann, ekki síst í ljósi þess að bæði Danir og Færeyingar ætla að bíða fram á vor. "Þannig að þetta er óskiljanlegt," segir hann.
Mest lesið Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Fleiri fréttir Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Sjá meira