Oprah Winfrey mun fjalla um íslensku rústabjörgunarsveitina 18. janúar 2010 20:21 Oprah Winfrey. „
Það hringdi í mig framleiðandi og vildi nota myndskeið af björgunarsveitinni," segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélags Landsbjargar. Framleiðandinn, sem starfar við spjallþátt sjónvarpsdrottningarinnar Opruh Winfrey, hafði samband við Ólöfu í kvöld og óskaði eftir að fá afnot af myndum og myndskeiðum sem sýna frá störfum íslensku rústabjörgunarsveitarinnar á Haítí. Eins og flestir vita þá er þáttur Opruh einhver vinsælasti sjónvarpsþáttur veraldar. Að sögn Ólafar þá verður þátturinn með rústabjörgunarsveitinni sýndur næsta miðvikudag. „Ég sagði honum auðvitað að það væri auðsótt mál," segir Ólöf en myndatökumaður á vegum Saga Film hefur fylgt sveitinni eftir á Haítí og skrásett öll björgunarafrek sveitarinnar undanfarna daga og reyndar síðustu tvö ár að sögn Ólafar. Aðspurð segir Ólöf að framleiðandinn hafi ekki farið ítarlega í efnistök þáttarins en hann mun ekki eingöngu fjalla um íslensku sveitina heldur björgunarstarfið í heild sinni. Íslenska sveitin verður því annar fulltrúi Íslands í þátt Opruh en spjallþáttadrottningin tók einnig viðtal við Svanhildi Hólm Valsdóttur um árið. Rústabjörgunarsveitin er nú stödd í Port Au Prince. Líkamlegt ástand björgunarsveitarmannanna er gott að sögn Ólafar en þeir hafa fengið lítinn svefn undanfarið. Búist er við að þeir komi heim í vikunni.
Mest lesið Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Fleiri fréttir Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Sjá meira