Makrílnum líkt við engisprettufaraldur 20. september 2010 03:00 Makrílkvótinn er 130 þúsund tonn sem er tvö til þrjú prósent af því magni sem er á ferðinni í Norður-Atlantshafi. Þorsteinn ÞH-360 hefur veitt 4.665 tonn af makríl í sumar.mynd/óskar
Makríll sem veiddur var inni á Berufirði fyrir nokkrum dögum var troðinn af loðnuseiðum. Á sama tíma og samnorrænn rannsóknaleiðangur mælir milljónir tonna af makríl á ferðinni á hafsvæðinu kringum landið spyrja sjómenn hvaða áhrif göngurnar hafi á aðra stofna. Sú vitneskja fæst ekki nema með frekari rannsóknum, að sögn sérfræðinga. „Besta samlíkingin er líklega engisprettufaraldur“, segir á vef Landssambands smábátaeigenda og til þess vísað að 25 grömm af tveggja sentimetra loðnuseiðum fundust að meðaltali í maga makríls sem veiddist fyrir austan. „Það þarf hvorki fjörugt ímyndunarafl né mikla reiknihæfileika til að átta sig á því hvers konar ryksugur makríltorfurnar eru við slíkar aðstæður“, segir á vef LS. Í sumar var farinn sameiginlegur rannsóknaleiðangur Íslendinga, Norðmanna og Færeyinga í kringum Ísland, Færeyjar og í norska hafinu. Vísbendingar eru um að fjórar til fimm milljónir tonna af makríl hafi verið á svæðinu, þar af um 650 þúsund tonn á því svæði sem rannsóknaskipið Árni Friðriksson kannaði innan íslensku lögsögunnar. Sveinn Sveinbjörnsson, sérfræðingur á nytjastofnasviði Hafrannsóknastofnunar, segir eðlilegt að loðnuseiði finnist í maga makríls fyrir austan. Makríllinn taki loðnuseiði þar sem þau gefast, eins og fleiri tegundir. „En aðal útbreiðslusvæði loðnuseiða er í kalda sjónum úti fyrir Norðurlandi þar sem ekki finnst mikill makríll. Ef makríllinn hins vegar ryðst þar inn færi maður að hafa verulegar áhyggjur.“ Sveinn gefur lítið fyrir uppnefni á makrílnum eins og „rottur hafsins“ og „engisprettur“. Hér sé kominn að landinu geysilega verðmætur stofn „og ég reikna með því að sjómenn séu að vitna til þess að ástæða sé til að veiða meira en nú er gert.“ Sveinn segir makrílgöngurnar hafa komið á mikilvægum tíma þar sem loðnan hafi lítið gefið sig frá 2006. Sama megi segja um kolmunna og veiðar úr íslenska síldarstofninum gefi minna en áður. Líkur séu jafnframt á minni veiði úr norsk-íslenska síldarstofninum en verið hefur. „Hvað loðnuna varðar þá minni ég á að makríllinn var ekki farinn að ganga hingað þegar loðnustofninn gaf eftir. Þar ber frekar að líta til umhverfisbreytinga. Það eru vísbendingar um að seiðin berist norður í haf og síðan jafnvel vestur undir Grænland. Þar lenda þau í Austur-Grænlandsstrauminn og það er ekki víst að þessi seiði skili sér hingað aftur í einhverju magni.“ svavar@frettabladid.is
Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Fleiri fréttir Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Nei-hreyfingin kvíslast í nokkrar áttir Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Sjá meira