Fannst niðurstaða ríkisstjórnarinnar „tussufín" SB skrifar 27. júlí 2010 18:08 Elías Jón Guðmundsson aðstoðarmaður menntamálaráðherra
Elías Jón Guðmundsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, segist ekki skilja hvernig tölvupóstur, þar sem hann lýsir því hvernig hægt sé að „spinna" atburðarrás fyrir blaðamannafund ríkisstjórnarinnar í dag barst úr tölvunni hans. „Í fyrsta lagi var þetta ókláraður póstur sem ég sendi aldrei, ég skil ekki hvernig hann komst úr tölvunni, þetta var bara draft sem ég var með í vinnslu," segir Elías sem er í fæðingarorlofi um þessar mundir. „Kannski sonur minn hafi hamrað á lyklaborðið hjá mér," bætir hann reyndar við. Það var vefurinn Grapevine.is sem greindi fyrst frá málinu. Athygli hefur vakið að Elías notar orðið „tussufínt" í póstinum. Hann segist vera í samskiptum við blaðamann sem vilji „skúbb" og segir: „Það er spurning hvernig við prjónum þetta" til að fókuspunktur fjölmiðla sé réttur. „Þetta átti nú að vera svar við pósti sem ég fékk með yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í dag. Og mér fannst það bara tussufín niðurstaða. Og svo var spurning hvernig við myndum prjóna þetta, hvernig við áttum að kynna blaðamannafundinn og niðurstöðuna." Elías segist hafa ætlað að bera undir samstarfsmann beiðni blaðamanns (sem í póstinum er nefndur Doddi) um að fá fyrirfram upplýsingar. „Þetta er nú ekki meiri spuni en það, oft eru fókuspunktar búnir til með fréttatilkynningum, menn setja fókus á það sem þeir vilja að mest sé tekið eftir. Þarna var ekki verið að afhenda skjöl eða eitthvað slíkt heldur einfaldlega að gefa smá innsýn í hvað væri í vændum. „Svo voruð þið á Vísi reyndar komnir með þessar upplýsingar á vefinn hálftíma á undan öllum öðrum svo það var greinilega einhver að spinna ykkur." -- Tölvupósturinn sem barst úr tölvu Elíasar -- From: Date: 2010/7/27 Subject: [redacted] To: [redacted] Tussufínt. Það er spurning hvernig við prjónum þetta. Doddi vill ólmur fá að skúbba einhverju fyrir fundinn og sé ég ákveðið tækifæri í því að láta það eftir honum. Þannig getum við sett fókusinn á eitthvað eitt atriði sem við viljum að fjölmiðlar séu fókuseraðir á þegar þeir mæta á fundinn. Hér er tillaga að texta sem við getum sent honum: "Efnahags- og viðskiptaráðherra mun ekki staðfesta lögmæti kaupa Magma á HS orku að svo stöddu líkt og meirihluti nefndar um erlenda fjárfestingu hefur lagt til við hann. Hann mun senda málsaðilum formlegt bréf þar sem hann tilkynir um að á vegum á vegum stjórnvalda sé að hefjast umfangsmikil vinna sem kunni að hafa áhrif á framtíðarstöðu opinberra jafnt sem einkaaðila á sviði orkumála og að ríkisstjórnin sé staðráðin í að vinda ofan af einkavæðingu innan orkugeirans og tryggja eftir megni að mikilvægustu orkufyrirtæki landsins séu á forræði opinberra aðila. Hluti af þeirri vinnu sem stjórnvöld ætla að hrinda af stað er rannsókn á öllu einkavæðingarferli Hitaveitu Suðurnesja, síðar HS orku, þar sem lögmæti kaupa Magma sem erlends aðila verði meðal annars kannað. Einnig vinna við endurskoðun lagaumhverfis varðandi eignarhald á orkufyrirtækjum, þ.á.m. um takmarkanir á eignarhaldi einkaaðila. " --------------------------------------------------------------------- Elías Jón Guðjónsson aðstoðarmaður ráðherra / Political Adviser to the Minister / Politisk rådgiver til ministeren Mennta- og menningarmálaráðuneytið / Ministry of Education, Science and Culture / Undervisnings-, forsknings- og kulturministeriet Sölvhólsgötu 4, IS-150 Reykjavík Sími/Tel. (+354) 545 9500, Farsími/Mobile. (+354) 694 1480 fax (+354) 562 3068 menntamalaraduneyti.is
Tengdar fréttir Tölvupóstur úr ráðuneyti afhjúpar spunavél ríkisstjórnar Grapevine birtir tölvupóst sem sagður er sýna fram á hvernig spunamenn ríkisstjórnarinnar reyndu að stjórna fjölmiðlaumfjöllun um Magma málið í dag. 27. júlí 2010 17:48 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Fleiri fréttir Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Sjá meira
Tölvupóstur úr ráðuneyti afhjúpar spunavél ríkisstjórnar Grapevine birtir tölvupóst sem sagður er sýna fram á hvernig spunamenn ríkisstjórnarinnar reyndu að stjórna fjölmiðlaumfjöllun um Magma málið í dag. 27. júlí 2010 17:48