Innlent

Áhyggjur af framkvæmd þingkosninga í Afganistan

Kosningaeftirlitsmenn hafa lýst áhyggjum sínum yfir framkvæmd þingkosninga í Afganistan um helgina en talning atkvæða hófst í dag.

Búist er við að það geti tekið nokkra mánuði að ljúka talningunni. Miklar vonir eru bundnar við nýtt þing landsins en sitjandi þing hefur glatað trausti bæði innanlands sem utan vegna gruns um vítækt kosningasvindls í forsetakosningum sem fram fóru í landinu á síðasta ári.

Skot- og sprengjuárásir hryðjuverkamanna á kjörstaði víða um landið náðu að trufla kosningarnar sem og störf eftirlitsmanna. En um sjö þúsund eftirlitsmenn fylgdust með kosningunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×