Harðari viðurlög við brotum á banni við áfengisauglýsingum 24. ágúst 2010 11:00 Álfheiður Ingadóttir. Mynd/Stefán Karlsson
Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, segir að þar sem ekki hafi tekist að draga nægjanlega mikið úr áfengisneyslu landsmanna verði að grípa til árangsríkari aðgerða. Hún vill að harðar verði tekið á brotum gegn banni við áfengisauglýsingum. Þetta var meðal þess sem kom fram í setningarávarpi Álfheiðar á norrænni ráðstefnu um áfengis- og fíkniefnarannsóknir sem sett var í Reykjavík í gær og lýkur á morgun. Álfheiður benti á að áfengisneysla á hvern íbúa, 15 ára og eldri, hefði næstum tvöfaldast á Íslandi frá 1980 til 2007, en það ár neytti hver landsmaður að meðaltali 7,5 lítra af hreinu áfengi. Í heilbrigðisáætlun til ársins 2010 hefði það verið eitt af helstu markmiðunum að minnka neysluna í fimm lítra á hvern landsmann. Þótt þetta markmið hefði ekki náð fram að ganga hefði sá árangur náðst að undanfarin ár hefði dregið úr áfengisneyslu ungmenna. Álfheiður sagði að eitt af meginmarkmiðum nýrrar heilbrigðisáætlunar til ársins 2020 verði að koma í veg fyrir misnotkun áfengis- og fíkniefna. „Það er skoðun mín að við þurfum að finna aðrar leiðir og grípa til árangursríkari aðgerða til þess að ná markmiðum okkar. Við þurfum til dæmis að taka harðar á brotum gegn banni við áfengisauglýsingum. Þetta bann er ekki virt eins og þið getið víða séð þegar þið litist um í Reykjavík eða fylgist með sjónvarpi eða dagblöðum."
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Sjá meira