Innlent

Nemandi í skólanum: „Héldum að það væri einhver að fíflast í okkur“

Landbúnaðarskólinn á Hvanneyri
Landbúnaðarskólinn á Hvanneyri
„Fólki er mjög brugðið, þetta er svo lítið samfélag hérna," segir nemandi í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Maður vopnaður hnífi hélt fjórum nemendum skólans í gíslingu í nótt. Enginn meiddist í atganginum.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru nemendurnir lausir úr prísund sinni þegar lögreglu bar að garði. Verið er að yfirheyra manninn og verður honum væntanlega sleppt síðar í dag.

„Það er búið að vera einhver umræða um þetta í dag. Fyrst þegar við heyrðum þetta héldum við að það væri einhver að fíflast í okkur, þetta var eitthvað svo lygilegt," segir nemandinn.

Nemandinn í skólanum segir að hann hafi ekki orðið var við stympingar á milli manna eða annað slíkt áður. „Við skemmtum okkur oft á fimmtudagskvöldum og þá er barinn opinn hérna. Ég hef aldrei orðið var við neinn kíting og allar skemmtanir fara oftast vel fram. Þetta er voðalega sérstakt," segir nemandinn.

Vefmiðillinn Pressan segir að maðurinn sé á skilorði og hafi verið dæmdur fyrir líkamsárás á Akureyri í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×