Julian Assange efstur hjá Time Valur Grettisson skrifar 8. desember 2010 10:11 Julian Assange.
Julian Assange, stofnandi Wikileaks, hefur hlotið flest atkvæði sem maður ársins á vef tímaritsins Time. Julian var tilnefndur af blaðinu ásamt 24 öðrum nafntoguðum einstaklingum. Julian er í efsta sæti með um 315 þúsund atkvæði. Á eftir honum Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, en hann er með 224 þúsund atkvæði. Hann hefur meðal annars unnið sér til frægðar að hafa gagnrýnt Ísrael harðlega eftir að herinn réðist á mótmælendur í skipi á leiðinni til Gaza fyrr á árinu. Hermennirnir drápu níu mótmælendur. Í þriðja sætinu er svo tónlistarkonan Lady Gaga sem er með 139 þúsund atkvæði. Þá er forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, í sjötta sætinu. Mugison hvetur alla til þess að kjósa Julian Assange sem mann ársins hjá Time. Julian var í heimsfréttunum í gær þegar hann gaf sig fram vegna handtökuskipunar frá Svíþjóð þar sem hann er eftirlýstur fyrir minniháttar kynferðisbrot. Breskir dómstólar neituðu honum um lausn gegn tryggingagjaldi og sætir hann því gæsluvarðhaldi í viku. Hann berst nú gegn framsali til Svíþjóðar af ótta við að verða framseldur til Bandaríkjanna þaðan. Julian hefur í krafti Wikileaks-síðunnar birt viðkvæm skjöl bæði um hernað Bandaríkjamanna sem og samskipti bandarískra sendiráða við gistiríki sín. Stærstu blöð veraldar hafa svo birt fréttir upp úr skjölunum en þau hafa haft þau undir höndum í nokkra mánuði. Meðal skjala sem láku út voru samskipti bandaríska sendiherrans á Íslandi við íslensk yfirvöld sem Fréttablaðið og Vísir greindu frá um helgina. Tónlistarmaðurinn Mugison, eða Örn Elías Guðmundsson eins og hann heitir, hvetur aðdáendur og vini á Facebook til þess að kjósa Julian Assange. Þess má geta að það er ritstjórn blaðsins sem velur mann ársins að lokum. Fyrir þá sem vilja kjósa mann ársins hjá tímaritinu má nálgast síðuna og listann hér.
Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Erlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Sjá meira