Var heilinn á bak við söluhæstu smáskífu Bretlands 13. janúar 2010 06:00 Óskar Páll stjórnaði upptökunum á söluhæstu smáskífu áratugarins í Bretlands en það var sigurlag Will Young í Pop Idol 2002. Óskar vann þá náið með hinum eiturharða Simon Cowell, sem vissi alltaf hvað hann vildi, og Will en Óskar sagðist ekki hafa haft mikla trú á því að hann gæti unnið keppnina. „
Ég man nú ekki hver greiðslan var en þetta hélt mér uppi í heilt ár í London. Og var borgin dýr þá. Umboðsmaðurinn minn sagði að þarna væru árslaunin komin,“ segir Óskar Páll Sveinsson, lagahöfundur og upptökustjóri, en hann var einn af heilunum á bak við söluhæstu smáskífu Bretlands á áratugnum sem var að líða að því er kemur fram í breska blaðinu The Sun. Óskar stjórnaði upptökunum á laginu Anything is Possible sem var lokalagið í fyrstu Idol-keppni Bretlands árið 2002. Will Young fór með sigur af hólmi í þeirri keppni en söngvararnir þrír sem voru í úrslitum sungu allir lagið. Sá sem hins vegar var krýndur popp-idol Bretlands fékk smáskífuna gefna út undir sínu nafni en Anything is Possible seldist í tæpum tveimur milljónum eintaka. „Ég held að ég hafi fengið þrefalda platínu-plötu fyrir þetta og það gerist nú ekki oft,“ rifjar Óskar Páll upp en hann var á þessum tíma á mála hjá Sony í London. „Þótt ótrúlegt megi virðast þá þekkti ég aðeins til Will Young áður en hann byrjaði í þessari keppni. Hann vann nefnilega sem sendill hjá Sony og ég kannaðist aðeins við hann,“ segir Óskar sem viðurkennir að hann hafi ekki haft mikla trú á því að Will gæti unnið þessa keppni. „Nei, hann var eitthvað svo lítillátur og hógvær að maður trúði því einhvern veginn ekki að hann myndi standa uppi sem sigurvegari.“ Óskar kynntist einnig sjálfum Simon Cowell, hinum eitilharða dómara þáttanna, við upptökur á laginu og þeir unnu saman að nokkrum verkefnum eftir það. „Ég man eftir því að við vorum að klára hljóðblöndun lagsins þegar Simon, Nigel Lythgoe (aðalsprautan og einn af dómurum So you think you can Dance-þáttanna) og einhverjir aðrir komu í stúdíóið, vel við skál. Og þá lék Simon við hvurn sinn fingur og var mjög almennilegur. Hann veit hins vegar alltaf hvað hann vill og ég fékk einmitt mjög gott heilræði frá honum þá sem var: „never overestimate the public“, eða, ekki ofmeta hinn venjulega hlustanda. Við vorum þá að missa okkur í einhverju smáatriði.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Britney farin í meðferð Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira