Innlent

Svifryk á Grensásvegi

Svifryksgildi mælast nú há við Grensásveg í Reykjavík, samkvæmt tilkynningu Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar. Klukkan hálf fjögur í dag mældist svokallað hálftímagildi yfir eitt þúsund míkrógrömmum á rúmmetra en heilsuverndarmörkin á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Ástæða þess að gildið er svo hátt við Grensásveg er sennilega vegna uppþyrlunar ruks frá götum, frá framkvæmdasvæðum eða salts úr sjónum. Þetta bendir til að gildi svifryks sé einnig hátt á fleiri stöðum í borginni, til dæmis við helstu umferðargötur borgarinnar, segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×