Kennarasambandið ætlar ekki að vera með í samfloti 6. desember 2010 09:12 „
Kennarasamband Íslands mun ekki taka þátt í heildarsamfloti um gerð kjarasamninga," segir í ályktun sem Kennararasambandið sendi til fjölmiðla í morgun. Þar segir ennfremur: „Samflot af því tagi var reynt á síðasta samningstímabili og reyndist félögum í KÍ afar illa. Þrátt fyrir það er Kennarasamband Íslands tilbúið til samvinnu um afmarkaða þætti sem miðar að því að finna þær forsendur sem kjarasamningar gætu byggt á. Forsenda fyrir þátttöku Kennarasambandsins í þeirri vinnu er hins vegar sú að vinnan verði unnin á ábyrgð ríkissáttasemjara og undir verkstjórn hans. Kennarasamband Íslands er fylgjandi samstarfi KÍ, BHM og BSRB um sameiginleg mál opinberra starfsmanna og mun leggja sitt af mörkum til að styrkja það samstarf. Miðað við núverandi aðstæður telur Kennarasamband Íslands engar forsendur fyrir því að gera kjarasamninga til lengri tíma en eins árs. Þessi skoðun er byggð á þeirri miklu óvissu sem nú ríkir varðandi ýmis atriði sem varða kjör félagsmanna KÍ. Nægir hér að nefna óvissu um fjárlög næstu ára, óvissu um fjárhagsáætlanir sveitarfélaga og ekki síst óvissu um þróun verðlags á næstu misserum. Þá er starfsöryggi margra í uppnámi vegna óvissu um framtíð skóla þar sem áform eru uppi um sameiningu og / eða niðurlagningu þeirra. Kennarasamband Íslands leggur áherslu á að sjálfstæður samningsréttur félaga verði virtur í komandi kjaraviðræðum. Nauðsynlegt er að strax verði hafist handa við kjarasamningagerð þannig að gerð nýrra kjarasamninga verði lokið sem allra fyrst enda hafa flest félög innan KÍ verið samningslaus vel á annað ár." Ályktunin var samþykkt á sameiginlegum fundi stjórna og samninganefnda félaga innan Kennarasambands Íslands.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Sjá meira