Vill spara milljarð króna í rekstri grunnskólanna 15. nóvember 2010 06:30 Samband sveitarfélaga vill fækka kennslustundum í grunnskólunum um þrjár til fimm í viku í sparnaðarskyni. fréttablaðið/gva
Sveitarfélögin verða að mæta átta milljarða króna tekjulækkun með lækkun rekstrarkostnaðar. Horft er til allra rekstrarliða og telur Halldór Halldórsson, formaður Sambands sveitarfélaga, mögulegt að lækka rekstrarkostnað grunnskólanna um milljarð króna. Kostnaður við þá er um helmingur rekstrarkostnaðar sveitarfélaga. „Við höfum ekki lengur efni á að gera allt sem við höfum gert og þurfum að taka út ýmislegt sem hefur bólgnað fullmikið út á síðustu árum,“ segir Halldór. „Þetta á við um lengri kennslutíma, meira val og alls konar þætti sem eru auðsjáanlega of dýrir.“ Sveitarfélögin hafa meðal annars lagt til svokallaða 5,4,3 leið. Í henni felst að fækka kennslustundum elsta grunnskólastigsins um fimm á viku, fjórar hjá miðstiginu og þrjár hjá yngstu krökkunum. Óskað hefur verið eftir samstarfi við menntamálaráðherra því sparnaðarleiðirnar geta kallað á breytingu á lögum og reglum. „Það þarf alvöru samstarf ríkis og sveitarfélaga við að ná niður kostnaði og auka sveigjanleika,“ segir Halldór sem telur skólastarfið ráðast um of af kjarasamningum kennara. Dæmi séu um að kennarar fari á yfirvinnukaup við kennslu á miðjum degi þar sem kennsluskyldunni þann daginn sé lokið. Að kennslustund lokinni sinni þeir svo öðrum þáttum starfsins á dagvinnukaupi því þeim beri að vera í vinnunni til klukkan fjögur. Halldór telur ekki vegið að menntun þó sparað verði um milljarð í grunnskólunum. „Stundum er sagt að það megi ekki svipta ungdóm landsins möguleikum á að mennta sig. En það er enginn að tala um það. Það er ýmislegt hægt að gera án þess að það komi á nokkurn skapaðan hátt niður á menntuninni.“- bþs
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Sjá meira