Innlent

Fimmtungur ók of hratt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan fylgdist með ökumönnum á Höfðabakka í dag. Mynd/ Pjetur.
Lögreglan fylgdist með ökumönnum á Höfðabakka í dag. Mynd/ Pjetur.
Um 22% ökumanna reyndust aka of hratt á Höfðabakka í Reykjavík þegar að lögreglan fylgdist með eftir hádegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Höfðabakka í norðurátt, gegnt Árbæjarsafni. Á 45 mínútum, eftir hádegi, fóru 456 ökutæki þessa akstursleið og af þeim óku 102 of hratt. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 kílómetra hámarkshraði. Sjö óku á 80 kílómetra hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 87.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×