Krabbameinsvaldandi efni á gervigrasvöllum 4. nóvember 2010 14:28
Í dekkjakurli sem notað er á gervigrasvelli barna eru krabbameinsvaldandi efni og eiturefni sem geta verið hættuleg börnum. Læknafélag Íslands skoraði fyrir skömmu, í einróma ályktun, á Alþingi að láta banna notkun þessa kurls. Gúmmíkurlið sem dreift er á gervigrasvelli þar sem börn iðka löngum fótbolta og leiki er gert úr ónýtjum dekkjum. Vitað er að ýmis eiturefni eru í dekkjum og þess vegna eru þau meðhöndluð af varúð og strangar reglur gilda um förgun þeirra. Þessar reglur gilda hins vegar ekki þegar búið er að kurla dekkinn niður og dreifa þeim á íþróttasvæði barna. Þórarinn Guðnason varaformaður Læknafélags Íslands segir að þó sé ljóst að þá eigi eiturefnin mun greiðari leið út í umhverfið en þegar þau eru enn bundin í hjólbarða. Í viðtali við nýjasta hefti Læknablaðsins bendir hann á að bannað sé að brenna dekk, því þá komist efnin úr þeim í andrúmsloft og umhverfi. Honum þykir því vandséð að betri lausn sé að tæta dekkinn niður og dreifa þeim á leikvelli þar sem börn séu að leik og efnin berist svo ít í umverfið og geti þar með eitrað jarðveg og grunnvatn. Þórarinn segir að vitað sé að í dekkjum séu efni sem innihaldi efni sem eru krabbameinsvaldandi, geta valdið ófrjósemi og taugaskemmdum. Þá séu áhrifin sem þau geta haft á umhverfið ótalin. Hann vill að heilbrigðiseftirlitum séu fengnar skýrar verkreglur og því sé mikilvægt að Alþingis samþykki þingsályktunartillögu um málið sem kveði á um bann á notkun á gúmmíkurli.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira