Seltirningar breyta skipuriti 10. september 2010 14:30 Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnarness.
Meirihluti bæjarstjórnar Seltjarnarnesbæjar samþykkti á bæjarstjórnarfundi á dögunum tillögu ráðgjafafyrirtækisins Capacent um nýtt skipurit yfirstjórnar sveitarfélagsins. Meirihlutinn, sem sjálfstæðismenn skipa, „telur rétt að við þær breyttu og erfiðu efnahagsaðstæður sem sveitarfélög á Íslandi búa nú við sé nauðsynlegt að leita allra leiða til þess að draga úr kostnaði við rekstur bæjarfélagsins," segir í tilkynningu frá bænum. Fimm stöður lagðar niður Þá segir að undanfarna mánuði hafi markvisst verið unnið að því að draga úr kostnaði á ýmsum rekstrarsviðum til að mæta minnkandi tekjum, en standa þess í stað vörð um gunnrekstur eins og t.d. skóla-, umhverfis- og öldrunarmál. „Fimm stöður framkvæmdastjóra mismunandi sviða bæjarins verða lagðar niður í sparnaðar- og hagræðingarskyni." Einnig hefur verið samþykkt að starfsemi sveitarfélagsins verði skipt í a.m.k. sex verkefnasvið í nýju stjórnskipulagi fyrir sveitarfélagið sem fyrsta áfanga í að taka upp flatt stjórnskipulag og verða þær stöður auglýstar. „Nýtt stjórnskipulag, sem tekur formlega gildi 1. október nk., miðar að því að færa uppbyggingu og virkni stjórnskipulags sveitarfélagsins nær fyrri uppbyggingu þess og því sem almennt gildir hjá sveitarfélögum af sambærilegri stærð utan höfuðborgarsvæðisins. Sú nálgun er mun heppilegri viðmiðun en við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, sem eru bæði stærri en Seltjarnarnesbær og eiga auk þess verulega stækkunarmöguleika öfugt við Seltjarnarnesbæ. Þar búa nú hátt í 5000 manns." Að lokum segir að tillagan miði að því að hafa skipulagið eins einfalt og kostur er, „að allar boðleiðir séu eins stuttar og frekast er unnt án þess að einstökum starfsmönnum sé ætlað um of."
Mest lesið Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira