Ingibjörg mætir á þingflokksfund klukkan átta Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. september 2010 10:33 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mætir á fund þingflokks Samfylkingarinnar í kvöld. Mynd/ Daníel.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, mun mæta á þingflokksfund Samfylkingarinnar klukkan átta í kvöld. Þetta segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, í samtali við Vísi. Ingibjörg Sólrún var utanríkisráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í aðdraganda bankahrunsins. Meirihluti var fyrir því í þingmannanefnd Atla Gíslasonar að ákæra hana, Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, Árna Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, og Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, vegna meintra brota á lögum um ráðherraábyrgð. Þórunn segir að vilji sé til þess hjá þingflokknum að fá fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, þá Geir Haarde og Árna Mathiesen, á fund. Hins vegar hafa þeir ekki enn verið boðaðir, enda segir Þórunn að þingflokkurinn vilji ræða við einn ráðherra í einu. Björgvin G. Sigurðsson hefur afþakkað boð um að mæta á fund þingflokksins. Þá mun þingflokkurinn funda klukkan eitt í dag með þeim sérfræðingum sem voru þingmannanefndinni til aðstoðar. Það eru þau Bryndís Hlöðversdóttir, deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst, dr. Ragnhildur Helgadóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, Jónatan Þórmundsson lagaprófessor, Sigríður J. Friðjónsdóttir, vararíkissaksóknari og Bogi Nilsson, fyrrverandi ríkissaksóknari.
Mest lesið Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Innlent „Þá kemur bara allt í einu högg“ Innlent Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Veður Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Innlent Brottvísanir verði beittasta vopnið Innlent Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Erlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Fleiri fréttir Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Sjá meira