Innlent

Ölvuð og réttindalaus kona ók á átta ára dreng

Ung kona, sem ók ölvuð og réttindalaus á átta ára dreng í Breiðholti um kvöldmatarleitið í gær, var vistuð í fangageymslum í nótt og verður yfirheyrð í dag.

Drengurinn meiddist á fæti og var fluttur á Slysadeild Landsspítalans, en útskrifaður þaðan eftir að gert hafði verið að sárum hans.

Vinkona konunnar á bílinn og kom hún á vettvang og ætlaði að taka á sig sökina, en lögregla sá við uppspuna kvennanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×